|
Upphaflegt ætlunarverk fyrirtækisins var að selja, setja upp og þjónusta fjarstýringar frá Datek AB í Svíþjóð. Fljótlega fór þó svo að Datek ísland fór að víkka sjóndeildarhringinn og bjóða ýmislegt af öðrum toga einkum þó vörur tengdar vökvakerfum og vökvatækni, ýmsum gerðum af rafstýringum og ýmislegt tengt flutningatækni. Í dag er svo komið að við höfum uppá að bjóða tæki og búnað frá yfir tuttugu framleiðendum víðsvegar um heiminn. Staða okkar er sífellt að styrkjast enda markmið okkar að veita góða og áreiðanlega þjónustu. Okkur langar að bjóða þig velkominn í hóp þeirra fjölmörgu sem hafa reynt þjónustu okkar og kynnt sér það sem við höfum á boðstólnum.
© Datek-Ísland |